Quantcast
Channel: Miði.is
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2696

Síðasti sjens 2013 - Tónleikar

$
0
0
Mynd

30. desember – skemmtilegasti dagur ársins – er rétt handan hornsins og það þýðir aðeins eitt: Síðasti Sjens 2013! Að þessu sinni eru það Retro Stefson, Sísý Ey og Hermigervill sem halda uppi stuðinu í Vodafonehöllinni fram á nótt. Húsið opnar kl. 21 og er stefnt á að fyrstu tónar berist kl. 22. Það verður öllu til tjaldað til að gera þennan viðburð að ógleymanlegri kvöldstund!

Það er algjörlega rakið að skella sér í dansinn og kveðja árið með stæl þennan næstsíðasta dag ársins!

Retro Stefson hafa þrátt fyrir ungan aldur skipað sér í allra fremstu röð íslenskra tónlistarmanna. Tónleikar þeirra þykja slá flestu við og lög þeirra hafa notið gríðarlegra vinsælda. Retro Stefson hefur ferðast um allan heim sl. misseri til að kynna plötu sína Retro Stefson sem kom út á Íslandi fyrir ári og hefur náð platínumsölu (yfir 10.000 eintök). Þessa dagana er sveitin að vinna að nýju efni og tekur sér því frí frá tónleikahaldi fyrri hluta ársins 2014.

Sísý Ey hafa frá því þær komu fyrst fram fyrir tæpum tveimur árum getið sér gott orð fyrir lagasmíðar og nýjan tón sem hefur vakið athygli á sveitinni á Íslandi og erlendis. Sveitin kom fram á Sonar á Íslandi og í Barcelona auk þess sem hún spilaði Iceland Airwaves tónlistarhátíðinni sl. 2 ár við góðan orðstýr. Í framhaldi af Iceland Airwaves var Sísý Ey boðið að koma fram á Eurosoinc hátíðinni í janúar auk fleiri hátíða sem verða kynntar síðar. Sveitin vinnur að fyrstu hljómplötu sinni þessa dagana sem stefnt er á að komi út á næsta ári.

Hermigervill er með allra skemmtilegustu tónlistarmönnum á Íslandi í dag. Hann á í fórum sínum sannkallaða danssmelli auk þess sem hann hefur endurhljóðblandað margar af perlum dægurlagasögu Íslands. Hermigervill hefur sl. misseri verið í auknum mæli að koma fram erlendis og spilar m.a. á M for Montreal tónlistarhátíðinni í nóvember auk þess sem hann kemur fram á Eurosonic í janúar.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 2696

Trending Articles


Girasoles para colorear


mayabang Quotes, Torpe Quotes, tanga Quotes


Tagalog Quotes About Crush – Tagalog Love Quotes


OFW quotes : Pinoy Tagalog Quotes


Long Distance Relationship Tagalog Love Quotes


Tagalog Quotes To Move on and More Love Love Love Quotes


5 Tagalog Relationship Rules


Best Crush Tagalog Quotes And Sayings 2017


Re:Mutton Pies (lleechef)


FORECLOSURE OF REAL ESTATE MORTGAGE


Sapos para colorear


tagalog love Quotes – Tiwala Quotes


Break up Quotes Tagalog Love Quote – Broken Hearted Quotes Tagalog


Patama Quotes : Tagalog Inspirational Quotes


Pamatay na Banat and Mga Patama Love Quotes


Tagalog Long Distance Relationship Love Quotes


BARKADA TAGALOG QUOTES


“BAHAY KUBO HUGOT”


Vimeo 10.7.0 by Vimeo.com, Inc.


Vimeo 10.7.1 by Vimeo.com, Inc.