
Þriðja plata Hjaltalín kom eins og þruma úr heiðskýru lofti fyrir tæpu ári síðan. Platan og tónlist hennar er óvæntur glaðningur, sannkölluð veisla fyrir hlustandann. Hún er uppfull af nánd og þykkri hlýju, og þó að hún geti á köflum verið myrk og allt að því drungaleg er alltaf undirliggjandi fegurð sem ber plötuna uppi. Erfitt er samt að lýsa plötunni, enda flakkar hún á milli tónlistarstefna og skapar þannig sinn eigin sérstaka heim. Sem fyrr einkennist tónlist Hjaltalín samt af framúrskarandi hljóðfæraleik og einstökum samtvinnungi söngvaranna, þeirra Sigríðar Thorlacius og Högna Egilssonar.
18 ára aldurstakmark