
Fyrir 13 árum síðan gaf Hera Björkút jóladiskinn Ilmur af jólum. Sá diskur er enn að seljast og er til á stórum hluta heimila landsins. Á þessum tónleikum mun Hera Björk ásamt gestasöngvurunum Eyþóri Inga, Pétri Erni og Margréti Eir flytja lögin af plötunni ásamt þeim nýja sem ber einfaldlega nafnið Ilmur af jólum II. Flutningurinn verður í höndum fyrrnefndra söngvara ásamt gospelkór, völdum hljóðfæraleikurum og allt undir stjórn Óskars Einarssonar.
Á sama tíma mun Hera Björk fagna nýútkomnum disk sínum Ilmur af jólum II
Á þessum óviðjafnanlegu tónleikum mun jólamánuðurinn hefjast með heitu kakói og jólabrosi.