
Tónleikarnir Gleði og Friðarjól með Pálma Gunnarssyni og gestum fara fram 7. desember næstkomandi í Hofi á Akureyri. Gestir Pálma á jólatónleikunum eru Ragnheiður Gröndal og Kammerkórinn Hymnodia, hljómsveitarstjóri er Þórir Úlfarsson. Fluttar verða jólaperlur sem flestir ættu að kannast við og koma fólki í hátíðarskap.