Kjötkompaní Hafnarfirði kynnir….
Litlu Jól Björgvins í Bæjarbíói á Þorláksmessu.
Þorláksmessutónleikar og matarveisla Björgvins Halldórssonar og hljómsveitar í Bæjarbíói Hafnarfirði. Sérstakir gestir eru hinir frábæru söngvarar Svala Björgvins og Stefán Hilmars. Kjötkompaní býður uppá dýrindis jólamat af bestu gerð fyrir tónleika og í hlé gestum að kostnaðarlausu. Tónleikarnir hefjast kl 22.00 og húsið opnar kl 21:00. Færri komust að en vildu í fyrra.
Björgvin Halldórsson er einn ástsælasti listamaður landsins og Hafnfirðingur alla leið. Björgvin var valinn bæjarlistamaður 2018. Stórglæsilegir stórtónleikar hans “Jólagestir Björgvins”, þar sem hann hefur tekið á móti tugum þúsunda gesta um árabil hafa verið glæsilegt innkall jóla hjá stórum hluta þjóðarinnar síðastliðin tólf ár og verða því haldnir í þrettánda sinn í Eldborginni í Hörpu 21-22 desember.
Bæjarbíó bíður uppá aðra stemmingu og annarskonar nánd. Þetta gamla kvikmyndahús við Strandgötuna í hjarta bæjarins býður svo sannarlega upp á notalega og heimilislega stemningu og er einn vinsælasti tónleikastaður höfuðborgarsvæðisins.
Björgvin, Svala, Stefán og hljómsveit munu á Þorláksmessutónleikum taka vel á móti gestum og flytja mörg af uppáhalds jólalögum margra í bland við lög sem þessir listamenn hafa hljóðritað í gegnum tíðina. Það er því von á notalegri kvöldstund í hjarta Hafnarfjarðar á þorláksmessukvöldi rétt áður en hátíðin gengur í garð og hangikjetið bíður í pottunum heima.
Tryggið ykkur miða strax því í fyrra seldist upp á mettíma.
Miðaverð kr.9.900
Allt það besta í mat og tónlist frá Hafnarfirði. Þetta verða “Litlu Jólin” alla leið.
Tónleikarnir hefjast kl 22.00 og húsið opnar kl 21:00
Hljómsveit Björgvins skipa margir af fremstu hljóðfæraleikurum landsins:
Þórir Úlfarsson Hljómborð
Jón E Hafsteinsson Gítar
Kristján Grétarsson gítar
Róbert Þórhallsson bassi
Jóhann Hjörleifsson trommur
Tæknimaður er Hafþór Karlsson.