Félagarnir Stebbi Jak, dimmusöngvari og Andri Ívars gítarleikari halda jólatónleika í Hlégarði Mosfellsbæ og Gamla Kaupfélaginu Akranesi. Öll bestu jólalög í heimi verða flutt í tilþrifamiklum "acoustic" útsetningum og gómsætir aulabrandarar verða sagðir af mikilli snilld.
Hlökkum til að sjá þig á Akranesi eða Mosfellsbæ, góða skemmtun.