Helgi Björnsson hefur átt gifturíkan feril sem söngvari, leikari og athafnamaður.
Hann hefur leitt hljómsveitir eins og Grafík, SS Sól, Reiðmenn vindanna og Kokteilpinna og gefið út tónlist með þessum sveitum og í eigin nafni. Helgi er löngu orðinn samofinn þjóðarsálinni með lögum sínum og textum.
Stemningin á síðustu tónleikum hans í mars var hreint út sagt mögnuð.
Það er öruggt að Helgi endurtekur leikinn í október og gerir allt
vitlaust að venju!
Hann mun leika sitt vinsælasta efni frá
öllum ferlinum og er víða komið við. Með Helga er frábær hljómsveit sem
hefur spilað með honum lengi.