Oscar Leone mun halda einlæga og notalega tónleika í Núllið Gallerý 30. og 31. ágúst næstkomandi. Heldur fáir komast að þannig það er um að gera að næla sér í miða sem fyrst. Þetta eru fyrstu opinberu tónleikar hans en hann hefur þó verið duglegur að koma fram í hverskyns seremóníum innan lands og utan. Tónlist Oscars er í anda folk, country og blues með pop ívafi en annars er best að hólfa þetta ekki of mikið niður.
Oscari til halds og trausts verður Kristján Gilbert, afar fær tónlistarmaður sem mun sjá um bongótrommur, gítar og því sem honum dettur í hug.
Hlökkum til að sjá ykkur og hafa það notalegt