Quantcast
Channel: Miði.is
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2696

Miðnæturtónleikar – Hundur í óskilum - Tónleikar

$
0
0

Eftir að hátíðartónleikum í Ólafsfjarðarkirkju lýkur keyrir tvíeykið Hundur í óskilum, upp fjörið í kirkjunni. Gamla safnaðarheimilið gegnt kirkjunni, sem í dag er fagurlega innréttað heimili, verður opið gestum og gangandi eftir tónleikana. Þar verður hægt að njóta það sem eftir lifir nætur með listamönnum Berjadaga. Góða skemmtun!

Hljómsveitin Hundur í óskilum er skipuð Eiríki G. Stephensen og Hjörleifi Hjartarsyni. Hljómsveitin var stofnuð á síðustu öld upp úr leifum hljómsveitarinnar “Börn hins látna” sem einnig var skipuð þeim Hjörleifi og Eiríki. Hundur í óskilum hefur frá upphafi fengist við tónlistarflutning, enda meðlimir hennar báðir tónlistarmenn. Tónlist Hunds í óskilum spannar allar nótur tónstigans og einkennist bæði af söng og hljóðfæraleik. Á ferli sínum hefur hljómsveitin komið fram á mörgum opinberum stöðum og hafa þeir félagar þá oftar en ekki tekið lagið og leikið undir á hljóðfæri sín. Hafa áheyrendur gert góðan róm að tónlistarflutningi þeirra og klappað á eftir hverju lagi. Á síðari árum hefur sveitin einkum látið að sér kveða á leiksviði og unnið þá gjarnan til grímutilnefninga og -verðlauna. Sveitin hefur gefið út tvær plötur og DVD disk er ættu að vera til á hverju menningarheimili. Hundur í óskilum er að koma fram í annað sinn á Berjadögum. 

Stakur aðgöngumiði: 1.500 kr. / Hátíðarpassi: 8.500 kr. (Allir viðburðir)
Frítt fyrir börn og unglinga 18 ára og yngri

Midnight concert with Hundur í óskilum

Following the Gala Evening, a jubilant atmosphere will reign in the Ólafsfjörður Church, lead by the popular and unique duo “Hundur í óskilum” who will appear in a short midnight concert starting at 22:30. Hundur í óskilum is comprised of Hjörleifur Hjartarson and Eiríkur G. Stephensen who have performed together for over twenty years and received numerous awards.

Single ticket: ISK 1.500 / Festival Pass: ISK 8.500
Free entrance for children up to 18 years of age


Viewing all articles
Browse latest Browse all 2696