TÓNLIST EFTIR/ MUSIC BY: Vivaldi, Bach, Mouret, Þorkel Sigurbjörnsson, Sigfús Einarsson og Manuel Rodriguez Solano
Jón Bjarnason dómorganisti í Skálholti fæddist í Skagafirði 1979 þar sem hann hóf píanónám 7 ára gamall. Hann lauk 8. Stigs prófi í píanóleik frá Tónlistarskóla Skagafjarðasýslu árið 1998. Jón útskrifaðist úr Tónlistarskólanum í Reykjavík með píanókennarapróf árið 2003. Hann útskrifaðist með Kantorspróf og einleiksáfanga frá Tónskóla Þjóðkirkjunnar árið 2006. Veturinn 2011-2012 lauk hann diplómu í orgelleik frá Konunglega tónlistarháskólanum í Kaupmannahöfn. Jón hefur starfað sem píanóleikari með Karlakór Selfoss frá árinu 2011. Hann hefur komið víða fram sem píanóleikari
með kórum og einsöngvurum. Hann hélt einleikspíanótónleika í Aratungu vorið 2016 sem fengu frábærar viðtökur. Jón hefur reglulega komið fram sem einleikari á orgeltónleikum í Skálholtsdómkirkju, Selfosskirkju, Alþjóðlegu orgelsumri og Kirkjulistahátíð í Hallgrímskirkju, Stykkishólmi og víðar. Jón hefur talsverða reynslu af kórstjórn og hefur starfað sem kórstjóri hjá mörgum kórum frá árinu 2003. Hann stjórnar Skálholtskórnum sem hefur meðal annars síðustu tvö ár tekið þátt í flutningi á kantötum eftir Johann Sebastian Bach en það er orðin hefð á Skálholtshátíð. Einnig stjórnar Jón Söngkór Miðdalskirkju og er fastráðinn organisti við 10 kirkjur í Skálholtsprestakalli. Jón var ráðinn sem kantor í Skálholtsdómkirkju árið 2009. Hann hefur verið áberandi á tónlistarlífi á suðurlandi síðustu tíu ár og hlotið styrki til tónleikahalds m.a. frá Samtökum Sunnlenskra sveitafélaga SASS.
Vilhjálmur Ingi Sigurðarson var fæddur á Akureyri árið 1980. Hann lærði á trompet við Tónlistarskóla Eyjafjarðar og síðar við Tónlistarskóla Akureyrar. Vilhjálmur lauk blásara- og einleikaraprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík vorið 2003 Aðalkennari hans var Ásgeir Hermann Steingrímssson.
Vilhjálmur fór sama ár í framhaldsnám í Tónlistarháskólann í Osló hjá Prófessor Jan Frederik Christiansen sem var 1. trompetleikari Fílharmoníusveitar Oslóar. Hann útskrifaðist með Cand magister gráðu vorið 2005. Vilhjálmur stundaði síðan Mastersnám við Sibelíusarakademíuna í Helsinki hjá prófessor Jouko Harjanne og Touko Lundell. Meðfram náminu í Helsinki lék hann m.a. með Óperuhljómsveitinni í Helsinki, Sinfóníuhljómsveit skólans og fleiri kammerhópum.
Vilhjálmur hefur spilað með fjölda hljómsveita og kammerhópa og hefur jafnframt reglulega komið fram sem einleikari, Hann var fulltrúi Íslands í keppni ungra norrænna einleikara árið 2004 í Osló þar sem keppendur voru frá öllum Norðurlöndunum. Af hljómsveitunum sem Vilhjálmur hefur spilað með má helst nefna Sinfóníuhljómsveit Íslands, þar sem hann er lausráðinn, Hljómsveit Íslensku Óperunnar, Sinfóníuhljómsveit Norðurlands, Kammersveitinni Ísafold, Sinfóníuhljómsveit Tónlistarskólans í Reykjavík og Listaháskóla Íslands og Sinfóníuhljómsveit æskunnar og Ungfóníu. Hann hefur einnig tekið þátt í Óperustúdíói Austurlands og hefur sótt blásarasveitarnámskeið m.a. til Danmerkur og Finnlands á vegum Nomu.
Hann er svo meðlimur í brasshópnum Hexagon .
Vilhjálmur hefur starfað sem hljóðfærakennari frá árinu 1999 við Tónlistarskóla Eyjafjarðar, Tónlistarskóla Eddu Borg og við Skólahljómsveit Vesturbæjar.
Hann starfaði við Tónlistarskólann á Akureyri frá árinu 2008-2013
Frá 2013-2017 kenndi hann við Tónlistarskóla Reykjanesbæjar og við Skólahljómsveit Austurbæjar. Hann starfar núna við Tónlistarskóla Akureyrar.
Jóhann Ingvi Stefánsson trompetleikari er fæddur og uppalinn á Selfossi og hóf tónlistarnám þar. Hann útskrifaðist úr blásarakennaradeild Tónlistarskólans í Reykjavík 1992.
Jóhann hefur haldið tónleika í samstarfi við ýmsa tónlistarmenn og leikið með margvíslegum hljómsveitum og kammerhópum. Má nefna Sinfóníuhljómsveit Íslands, Sinfóníuhljómsveit Norðurlands, Stórsveit Reykjavíkur, Caput hópinn o.fl. Hann hefur einnig leikið í uppfærslum í Þjóðleikhúsinu og Íslensku óperunni.
Jóhann hefur komið fram sem einleikari með Sinfóníuhljómsveit Íslands og Sinfóníuhljómsveit áhugamanna.
Hann er meðlimur í ýmsum hljómsveitum t.d. rokkhljómsveitinni Skjálftavaktinni og danshljómsveitinni Blek og Byttur.
Jóhann er aðstoðarskólastjóri Tónlistarskóla Árnesinga.
Jón Bjarnarson was born in Skagafjörður, North Iceland, in 1979.
He started piano lessons when he was seven years old and graduated as a piano teacher in 2003 from Reykjavík College of music. Jón Graduated as a cantor from Tónskóli Þjóðkirkjunnar in 2006, as well as finishing his performance diploma.
He finished a diploma in Organ repertoire from the Royal Danish Academy of music in Copenhagen 2011-2012. Jón was a cantor in Seljakirkju Church in Reykjavik from 2003-2009. Jón is now a cantor in Skálholt cathedral south Iceland since 2009.
Vilhjálmur Ingi Sigurðsson was born in Akureyri in north Iceland in the year 1980. He first studied trompet in Akureyri Musicschool from age 10. He then attended Reykjavik Music School and studied with Asgeir H. Steingrimsson and graduated in the year 2003.
He then moved to Oslo and studied at the Norwegian College of music from 2003-2005 where he finished his Bachelor Degree.
His teacher there was Professor Jan Frederik Christiansen.
Vilhjálmur moved to Finland and studied Master of Music where his teachers there where Jouko Harjanne and Touko lundell. He graduated with Masters degree in performance in the spring of 2008.
In his studies he played with several orcestras including the Sibelius Academy orchestra , Helsinki opera and many chamber groups during his studies at the academy
Vilhjálmur moved back to Iceland and started to work with North Iceland symphony orchestra (Sinfonianord) as a solo trumpetist and teaching at the Akureyri music school.
Vilhjálmur has also played with Iceland symphony Orchestra , Icelandic Opera and is a member of Ísafold chamber orchestra, Hexagon Brass ensemble and works as a freelance with many other groups. has been very active as a soloist and has attended trumpet competitions both in Oslo 2004 and in Lieksa 2012.
Jóhann Ingvi Stefánsson trumpet player was born in Selfoss and started music education there. He graduated from the Tónlistarskólinn í Reykjavík teacher
faculty academy in 1992. Jóhann has held concerts in collaboration with various musicians and played with various bands and chamber music groups. These include the Iceland Symphony Orchestra, the North Iceland Symphony Orchestra, the Reykjavik Big Band, the Caput Group and others. He has also
participated in theater and opera shows in the national theater and the icelandic opera. Jóhann has appeared as a soloist with the iceland symphony orchestra and the amateurs symphony orchestra. He is a member of various bands e.g. the rock band Skjálftavaktin and the dance band Blek and Byttur. Jóhann is the Deputy Head of the music school of Tónlistarskóli Árnesinga.
Efnisskrá / Program:
Antonio Vivaldi 1678-1741Concerto for two trumpets and strings
Johann Sebastian Bach 1685-1750Triosonata in E flat minor BWV 525
Allegro
Adagio
Allegro
Jean Joseph Mouret 1682-1738Rondeau
Þorkell Sigurbjörnsson 1938-2013Heyr himnasmiður
arr. Jón Bjarnason
Sigfús Einarsson 1877-1939Draumalandið
Manuel Rodriguez Solano 1977-