TÓNLIST EFTIR/ MUSIC BY:
Eyþór Ingi Jónsson lauk kantorsprófi frá Tónskóla Þjóðkirkjunnar árið 1998, undir leiðsögn Harðar Áskelssonar, Fríðu Lárusdóttur o.fl. Því næst lauk hann 7 ára námi við Tónlistarháskólann í Piteå í Svíþjóð, fyrst við kirkjutónlistardeild og síðar við konsertorganistadeild. Aðal orgelkennari hans var prof. Hans-Ola Ericsson. Auk þess að leggja áherslu á orgelleik í námi sínu hefur Eyþór lagt mikla áherslu á kórstjórn. Kennari hans var prof. Erik Westberg. Hann hefur sótt meistarakúrsa og einkatíma hjá mörgum af þekktustu orgelleikurum og kórstjórum samtímans.
Eyþór kennir ýmsar tónlistargreinar, heldur reglulega námskeið og fyrirlestra. Hann hefur haldið hátt í 100 einleikstónleika hérlendis og erlendis. Einnig hefur hann leikið með fjölda hljóðfæraleikara og söngvara. Eyþór hefur bæði leikið einleik með Sinfóníuhljómsveit Norðurlands (Orgelkonsert E. Bossi) sem og stjórnað hljómsveitinni. Hann hefur einnig frumflutt orgelkonsert eftir Michael Jón Clarke með kammersveit tónskáldsins.
Eyþór starfar nú sem organisti við Akureyrarkirkju. Einnig er hann stjórnandi kammerkórsins Hymnodia. Eyþór kennir orgelleik og spuna við Tónskóla Þjóðkirkjunnar. Hann hefur einbeitt sér annars vegar að flutningi tónlistar frá 17. öld og hinsvegar nútímatónlistar og spuna, bæði fyrir orgel og kór. Hann hefur pantað og/eða frumflutt tugi tónverka eftir íslensk og erlend tónskáld. Hann er einn af forkólfum Barokksmiðju Hólastiftis.
Eyþór var bæjarlistamaður Akureyrar 2011-2012
Eyþór Ingi Jónsson attained the Cantor Diploma from Reykjavík Church Music School, Iceland in the spring of 1998. Then followed study at the Piteå Acadamy of Music in Sweden, four years in the Church Music Department and then three years study in the Concert Organist Department, with professor Hans-Ola Ericsson. In addition he had lessons with Gary Verkade among other specialists.
Eyþór Ingi has also taken part in a number of masterclasses throughout Europe. In addition to organ study he has devoted himself to the study of choir conducting under professor Erik Westberg.
Eyþór Ingi has taught various subjects and been a visiting tutor at The Icelandic Arts Academy. He performs regularly, and has held more than one hundred solo concerts both in Iceland and abroad. He has taken part in a broad range of chamber concerts and has been featured in a number of recordings with various artists.
Eyþór Ingi has both conducted and performed as soloist with the Northern Iceland Symphony Orchestra. His present post is organist at the Akureyri Church. He also founded and conducts the Hymnodia Chamber Choir. His speciality is music from the seventeenth century as well as contemporary music and improvisation, both for organ, and with singers. Eyþór Ingi is a Musical Director of the Holar Baroque Festival, The Akureyri Church Music Festival Week and the Akureyri Church Summer Concert season and was made Town Artist of the Year 2011-2012.
Efnisskrá / Program :
Pedro de Araújo 1640-1705Batalha de 6° Tom
François Couperin 1685-1773 Messe pour les paroisses - Sanctus
Plein chant du premier Sanctus en Canon
Recit de Cornet - 2e Couplet
Benedictus - Cromhorne en Taille
Johann Sebastian Bach 1685-1750Komm, süsser Tod
úts. Virgil Fox:
Toccata & Fuga in d, BWV 565