Föstudagur 26. júlí kl. 20
Opnunartónleikar Reykholtshátíðar
Oddur Arnþór Jónsson, barítón
Anna Guðný Guðmundsdóttir, píanó
Auður Hafsteinsdóttir, fiðla
Helga Þóra Björgvinsdóttir, fiðla
Anna Magdalena den Herder, víóla
Sigurgeir Agnarsson, selló
Kynnir er Guðni Tómasson
Efnisskrá opnunartónleika Reykholtshátíðar inniheldur tvo ljóðahluta úr Schwanengesang D. 957 eftir Franz Schubert, annars vegar sjö ljóð Ludwig Rellstab og hins vegar sex ljóð eftir Heinrich Heine. Tvö mögnuð en ólík verk, Dover Beach eftir hinn Samuel Barber sem hann samdi við ljóð Matthew Arnold og Let us Garlands Bring sem Gerald Finzi samdi við ljóð William Shakespeare, brjóta upp Svanasönginn.
Oddur Arnþór hefur undanfarið skipað sér í fremstu röð klassískra söngvara. Skemmst er að minnast frábærrar frammistöðu hans í einu aðalhlutverkanna í Brothers, óperu Daníels Bjarnasonar en fyrir það hlutverk hlaut hann Íslensku tónlistarverðlaunin sem söngvari ársins 2018 og tilnefningu til Grímunnar, íslensku sviðslistaverðlaunanna.
Anna Guðný Guðmundsdóttir er fyrir löngu komin í hóp þekktustu listamanna þjóðarinnar. Hún leikur með Sinfóníuhljómsveit Íslands, kemur reglulega fram sem einleikari og er einn af eftirsóttustu meðleikurum klassískra söngvara hér á landi.
Dover Beach er samið fyrir barítón og strengjasveit og hefur ekki heyrst oft hér á landi. Fjórir hljóðfæraleikarar hátíðarinnar þau Auður Hafsteinsdóttir, Helga Þóra Björgvinsdóttir, Anna Magdalena den Herder og Sigurgeir Agnarsson flytja verkið ásamt Oddi Arnþóri Jónssyni en þau Oddur og Anna Guðný flytja önnur verk á efnisskránni. Guðni Tómasson, útvarpsmaður mun síðan veita áheyrendum annars konar innsýn í efnisskrána.
Sjá nánar á heimasíðu Reykholtshátíðar
------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
Laugardagur 27. júlí
Kórtónleikar kl. 16:
Ó, ljúfa sól
Kvennakórinn Vox feminae
Stjórnandi: Hrafnhildur Árnadóttir Hafstað
Kvennakórinn Vox feminae var stofnaður árið 1993 og hefur lengi talist í flokki bestu kvennakóra landsins. Kórinn flytur hér íslenska efnisskrá, bæði frumsamin lög og þjóðlög – mörg hver í nýjum útsetningum samtímatónskálda. Tónleikarnir bera yfirskriftina Ó, ljúfa sól en á efnisskrá eru verk eftir mörg okkar þekktustu tónskáld m.a. Atla Heimi Sveinsson, Jón Ásgeirsson, Hjálmar H. Ragnarsson, Báru Grímsdóttur, Snorra Sigfús Birgisson og Hildigunni Rúnarsdóttur.
Sjá nánar á heimasíðu Reykholtshátíðar
------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
Kammertónleikar kl. 20:
Rétttrúnaður og rómantík
Auður Hafsteinsdóttir, fiðla
Helga Þóra Björgvinsdóttir, fiðla
Anna Magdalena den Herder, víóla
Bryndís Halla Gylfadóttir, selló
Sigurgeir Agnarsson, selló
Kynnir er Guðni Tómasson
Laugardagskvöld á Reykholtshátíð býður upp á spennandi efnisskrá af sjaldheyrðum en frábærum verkum sem eiga það sameiginlegt að vera samin af tónskáldum sem voru mikils metin á sínum tíma en eru e.t.v. ekki ýkja þekkt í dag. Hljóðfæraleikarar á kammertónleikunum eru einvalalið tónlistarmanna, fiðluleikararnir Auður Hafsteinsdóttir og Helga Þóra Björgvinsdóttir og sellóleikararnir Bryndís Halla Gylfadóttir og Sigurgeir Agnarsson. Sérstakur gestur á tónleikunum er hollenski lágfiðluleikarinn Anna Magdalena den Herder sem kemur í ár í fyrsta sinn fram á Reykholtshátíð.
Franski sellóleikarinn og tónskáldið Jean-Baptiste Barrière starfaði um margra ára skeið við hirð Loðvíks XV konung Frakklands og var talinn einn mesti sellósnillingur þess tíma. Hann samdi einkum fyrir selló og enn þann dag í dag gerir ritháttur hans miklar tæknilegar kröfur til flytjenda eins og sellósónatan í G-dúr fyrir tvö selló sýnir.
Ungverjinn Ernst von Dohnányi var gríðarlega fjölhæfur og áhrifamikill tónlistarmaður í Evrópu og Ameríku á fyrri hluta 20. aldar. Það var fátt sem honum var ekki til lista lagt er varðaði tónlist. Hann var afburða píanóleikari, stjórnandi, tónskáld og kennari. Á seinni árum hefur svo æ betur komið í ljós hvaða þátt hann lék í að aðstoða tónlistarfólk af gyðingaættum á tímum seinni heimsstyrjaldarinnar í Ungverjalandi. Á þessum tónleikum hljómar Serenaða í C-dúr op. 10 eftir Dohnányi sem þykir eitt af hans allra bestu verkum.
Strengjakvartettinn í a-moll eftir Anton Arensky er tileinkaður minningu Tchaikovsky sem hafði verið vinur og lærifaðir Arensky. Kvartettinn hefur þá sérstöðu að hann er skrifaður fyrir fiðlu, lágfiðlu og tvö selló. Sá aukni dimmi hljómur sem fæst með notkun tveggja sellóa er mjög einkennandi fyrir verkið en verkið vitnar bæði í sálmalag úr rússnesku rétttrúnaðarkirkjunni, tónsmíðar Tchaikovsky og rússneskt þjóðlag sem m.a. Mussorgsky og Beethoven notuðu í tónsmíðum sínum.
Tónlistarsagan er rík af verkum á borð við þau sem við flutt verða á þessum tónleikum – og tónskáldum sem hafa fallið í gleymskunnar dá. Við vonumst til að áheyrendur hrífist með okkur af áður óþekktum tónsmíðum og sögunum sem tengjast þeim.
Sjá nánar á heimasíðu Reykholtshátíðar
------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
Sunnudagur 28. júlí kl. 16
Lokatónleikar Reykholtshátíðar:
Heimskringlur og hetjudáð
Hrafnhildur Árnadóttir Hafstað, sópran
Guja Sandholt, mezzó-sópran
Oddur Arnþór Jónsson, barítón
Anna Guðný Guðmundsdóttir, píanó
Auður Hafsteinsdóttir, fiðla
Helga Þóra Björgvinsdóttir, fiðla
Anna Magdalena den Herder, víóla
Bryndís Halla Gylfadóttir, selló
Sigurgeir Agnarsson, selló
Kynnir er Guðni Tómasson
Það kennir ýmissa grasa á lokatónleikum Reykholtshátíðar. Tónleikarnir hefjast á að hljóðfæraleikarar Reykholtshátíðar flytja hinn stórkostlega píanókvintett í f-moll eftir Johannes Brahms, en verkið er eitt helsta kammerverk þessa þýska tónjöfurs.
Eftir hlé fá áheyrendur að heyra sögu Haralds konungs harðráða í öróperunni King Harald’s Saga eftir enska tónskáldið Judith Weir. Texti óperunnar er unninn upp úr Heimskringlu Snorra Sturlusonar og því hvergi betur við hæfi að hlýða á þetta verk en í Reykholti þar sem Snorri bjó um árabil. Verkið, sem er einungis um 10 mínútur að lengd, er væntanlega stysta ópera sem hefur verið skrifuð, en er engu að síður í þremur þáttum og með sérstöku niðurlagi þar að auki.
Ljóðaflokkurinn Heimskringla eftir Tryggva M. Baldvinsson við texta Þórarins Eldjárns slær botninn í Reykholtshátíð 2019. Tryggvi samdi þennan bálk á árunum 1995 til 2005 eftir að hafa heillast af ljóðum Þórarins og þeim húmor og hnyttni sem er að finna í þeim. Tryggvi bregður fyrir sig ýmsum stílbrögðum til að undirstrika innihald textans, við fáum m.a. að heyra leiftrandi tangó, sálmalög og ýmislegt fleira. Tónlist Tryggva fellur meistaralega vel að glettnum ljóðum Þórarins svo að nokkuð víst er að tónleikagestir munu ganga út með bros á vör.
Útsetningin sem verður flutt á þessum tónleikum af Heimskringlu er sérstaklega gerð fyrir þetta tilefni. Auður Hafsteinsdóttir fiðluleikari, Bryndís Halla Gylfadóttir sellóleikari og Anna Guðný Guðmun