Bylgjan í samvinnu við prime kynna Þorláksmessutónleikaröð Bubba Morthens.
Þorláksmessutónleikaröð Bubba Morthens er ein allra langlífasta tónleikahefð í aðdraganda jóla.
Bubbi bregður ekki út af vananum þetta árið og heldur af stað með kassagítarinn. Hann verður á kunnuglegum slóðum líkt og undanfarin ár. Tónleikaröðin hefst i einu vinsælasta tónleikastað landsins, Bæjarbíói í Hafnarfirði föstudagskvöldið 11. desember. Síðan verður haldið á Akranes og Akureyri og endað á sjálfa þorláksmessu í Eldborgarsal Hörpu.
Dagskráin er þessi
11. desember Bæjarbíó Hafnarfirði
12. desember Bæjarbíó Hafnarfirði
19. desember Bíóhöllin Akranesi
21. desember Hof Akureyri (Miðasala á www.mak.is )
23. desember Eldborg Reykjavík (miðsala á www.harpa.is og www.tix.is )
Miðasala hefst á midi.is, fimmtudaginn 6. Júní kl 10:00. Allar nánari upplýsingar eru á prime.is, og á facebook síðum Bubba Morthens og Prime umboðsskrifstofu.