Hjarta Hafnarfjarðar 8.-14. júlí - ÚTISVÆÐI
Það verður mikið um að vera og stanslaus gleði á útisvæði Hjarta Hafnarfjarðar vikuna 8.-14. júlí 2019.
Líkt og í fyrra verður svæðið staðsett fyrir framan Bæjarbíó á bókasafnsplaninu í samvinnu við Hafnarfjarðarbæ, fyrirtækin í nágrenninu og íbúa miðbæjarins.
Mikil tónlistarveisla verður alla vikuna.
Öllum tónleikunum sem eru inni í Bæjarbíói verður varpað á 12 fermetra risa LED skjá í fullkomnu 'sándi'.
Útiböll verða fimmtudag, föstudag og laugardag, Dj´s, trúbadorar og allskyns gleði.
Gullvagninn verður á svæðinu og risa bjórgámur auk þess sem fjöldi veitingastaða í Hafnarfirði verða með góðgæti á boðstólum fyrir svanga gesti bæjar- og tónlistarhátíðinnar Hjarta Hafnarfjarðar.
Útisvæðið opnar kl 19:00 á kvöldin og er opið til miðnættis mánudag, þriðjudag og miðvikudag
og svo til kl. 01:00 eftir miðnætti fimmtudag, föstudag og laugardag.
Dagpassar eru seldir sérstaklega á útisvæðið en þeir sem tryggja sér miða á tónleikana í Bæjarbíói hafa aðgang að útisvæðinu inni í miðarverðinu.
DAGSKRÁ Á ÚTISVÆÐI:
8. Júlí - Mánudagur- OPNUNARHÁTÍÐ - FRÍTT INN
9. Júlí - Þriðjudagur- ÚTISVÆÐI - DIMMA á risa LED skjá - DJ til miðnættis
10. Júlí - Miðvikudagur- ÚTISVÆÐI - FRIÐRIK DÓR á risa LED skjá - DJ til miðnættis
11. Júlí - Fimmtudagur- ÚTISVÆÐI - Björgvin Halldórson ásamt hljómsveit á risa LED skjá og síðan PAPABALL til kl. 01:00
12. Júlí - Föstudagur- ÚTISVÆÐI - Jónas Sig - Milda hjarta á risa LED skjá og PAPABALL til kl. 01:00
13. Júlí - Laugardagur- ÚTISVÆÐI -Á móti sól á risa LED skjá og ball með Á móti sól til kl. 01:00
Sjá nánar á https://baejarbio.is