Söngkeppni Framhaldsskólanna 2019.
Frábær keppni framundan, 25 framhaldsskólar taka þátt og eru kynnar kvöldsins bræðurnir Jón Jónsson & Friðrik Dór.
Í fyrra var það Menntaskólinn á Akureyri sem fór heim með hljóðnemann, hvaða framhaldsskóli slær í gegn að þessu sinni ?
Fyrirkomulag er svipað og í fyrra, hver skóli fær tvær mínútur og þrjátíu sekúndur til að slá í gegn og er það í höndum dómnefndar og þjóðarinnar með símakosningu að segja til um sigurvegara.
Í ár fer keppnin fram í einu sögufrægasta menningarhúsi landsins sem þekkt er fyrir frábæran hljóm - Bíóhöllinni á Akranesi.
Góða skemmtun ;-)