Páll Óskar og JóiP & Króli er blanda sem mun sprengja þakið af húsinu. Palli lætur fólk einfaldlega bilast á dansgólfinu á Spot, þeytir skífum og passar upp á að allir syngi með.
Þegar leikar standa sem hæst mæta súperstjörnurnar JóiP & Króli og telja í öll sín flottustu lög, þar á meðal B.O.B.A., Í átt að tunglinu, Þráhyggja, O shit og Næsta. Páll Óskar tekur einnig öll sín bestu lög ásamt dönsurum og draumaprinsum.
Gerið ráð fyrir klassískum lögum eins og Stanslaust Stuð, La Dolce Vita, Allt fyrir ástina, International, Betra Líf, TF-Stuð, Líttu upp í ljós, Ég er eins og ég er, Þú komst við hjartað í mér, Bundinn fastur, Jafnvel þó við þekkjumst ekki neitt, Söngur um lífið, Minn hinsti dans, Ást sem endist, Vinnum þetta fyrirfram, Ljúfa líf og Það geta ekki allir verið gordjöss.
Þetta verður síðasta Pallaballið á Spot í bili. Næst spilar hann þar á gamlárskvöld 31. desember 2019.
Það stefnir allt í ógleymanlegt djammkvöld á Spot í Kópavogi, með flottustu poppstjörnum Íslands.
Miðaverð: kr. 2500.- til föstudagsins 8. mars Frá og með miðnætti fös 8. mars kr. 3500.-
Forsala hér á midi.is margborgar sig!
Aldurstakmark 18 ára.