Quantcast
Channel: Miði.is
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2696

Svala Björgvins, þá og nú. Í Bæjarbíói - Tónleikar

$
0
0

Svala Björgvinsdóttir ætlar að halda tónleika í Bæjarbíói þann 5. apríl næstkomandi og leiða okkur í gegn um langan feril sinn og flytja fyrir okkur brot af því besta sem hún hefur gefið út í gegn um tíðina. 

Svala fær einnig góða gesti með sér á svið.

Hljómsveit:
Bjarki Ómarsson
Jón Valur
Hálfdán Árnason
Kristófer Nökkvi Sigurðsson

Söngkonan og lagahöfundurinn Svala Björgvinsdóttir er flestum kunn hér á landi enda flutt og samið fjölda þekktra og vinsælla laga allt frá unga aldri. Auk þess hefur Svala náð með tónlist sinni, tónleikahaldi og magnaðri sviðsframkomu gríðarlega góðum árangri á erlendri grundu og þá einkum í Bandaríkjunum. Tónlist Svölu hefur ratað bæði í sjónvarpsþætti og kvikmyndir og komist inn á ýmsa vinsældarlista svo sem á topp 10 smáskífulista iTunes og á topp 30 Billboardlistans í Bandaríkjunum. Þessa dagana er Svala að koma fram með nýrri hljómsveit og að semja ný lög fyrir væntanlega plötu en hún skrifaði undir dreifingarsamning hjá Sony DK árið 2018. 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 2696