Hammondhátíð Djúpavogs fer fram í fjórtánda sinn dagana 25.-28. apríl.
Markmið Hammondhátíðar er að heiðra þetta magnaða hljóðfæri, Hammondorgelið, en eftir því sem við komumst næst er þetta eina hátíðin í heiminum sem tileinkuð er þessu hljóðfæri. Hátíðin var fyrst haldin árið 2006 og hefur jafnt og þétt vaxið fiskur um hrygg síðan.
Fimmtudagur 25. apríl kl. 21:00 // Hótel Framtíð
Dimma
Föstudagur 26. apríl kl. 21:00 // Hótel Framtíð
Dúndurfréttir
Laugardagur 27. apríl kl. 21:00 // Hótel Framtíð
Ensími
Jónas Sig.
Sunnudagur 28. apríl kl. 14:00 // Djúpavogskirkja
Lay Low, ásamt Guðmundi Óskari og Tómasi Jónssyni