Þann 7. febrúar spilar hljómsveitin ADHD í Mengi (í annað sinn...). Tónleikarnir eru einhvers konar upphitun fyrir heljarinnar tónleikaferð/Evrópureisu sem hljómsveitin heldur í 8. mars. Á efnisskránni verða lög, sum glæný, önnur eldri, en gaman er að segja frá því að þessi nýju lög koma út á plötu nú síðar í vor. Góðar stundir! Miðaverð: 3000
↧