Rósa Guðrún Sveinsdóttir heldur jólatónleika með hljómsveit sinni mánudagskvöldið 17. desember klukkan 20:30 í andyri Tónlistarskólans á Akranesi. Rósa Guðrún er uppalin á Akranesi en býr í Reykjavík.
Tónleikarnir verða í forrými skólans og verða þar flutt ýmis jólalög. Með Rósu Guðrúnu á sviðinu verða Sigurdís Sandra, jazzpíanisti, Sigmar Þór bassaleikari og Svanhildur Lóa trommuleikari.
„Ég hélt jólatónleika á Akranesi fyrir nokkrum árum síðan, þá með gítarleikara og ég hef alltaf verið á leiðinni aftur. Svo ákvað ég að slá til núna og í þetta sinn kem ég með heila hljómsveit með mér. Það er alltaf gaman að koma á staðinn þar sem maður ólst upp og syngja fyrir fólkið sitt. Stefnan er sett á að skapa huggulega stemningu með nánd við áhorfendur. Við Sigurdís erum búnar að útsetja nokkur lög upp á nýtt, setjum lögin í annan fíling og svo er ég búin að búa til jólatexta við lög sem eru ekki endilega þekkt sem jólalög.“ segir Rósa Guðrún.