
IsNord tónlistarhátíðin verður haldin dagana 13. -16. júní. Dagskráin verður fjölbreytt þannig að allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi og eru borgfirskir tónlistarmenn í aðalhlutverki. Er þetta í níunda sinn sem hátíðin er haldin og verða fimm tónleikar að þessu sinni.
Fimmtudaginn 13. júní verða tónleikar í Hjálmakletti kl. 20.30 með hljómsveitinni Waveland en hana skipa Birgir Þórisson, Björn Breiðfjörð Gíslason, Erna Jóhannesdóttir, Ingi Björn Róbertsson, Margrét G. Thoroddsen og Viðar Engilbertsson og Quintet Heimis Klemenzsonar en hana skipa Heimir Klemenzson, Jakob G. Sigurðsson, Páll S. Eydal, Rakel Pálsdóttir og Þórður H. Guðjónsson.
Föstudaginn 14. júní verða tónleikar í Reykholtskirkju kl. 20.30 þar sem Margrét Brynjarsdóttir kontraaltsöngkona kemur fram ásamt Jónínu Ernu Arnardóttur píanóleikara. Margrét er að útskrifast í vor með meistaragráðu í söng frá Tónlistarháskólanum í Osló og hefur meðal annars sungið með norska einsöngvarakórnum og komið fram með Royal Liverpool Philharmonic Orchestra í Betlaraóperu B. Brittens.
Hátíðinni lýkur svo á tvennum tónleikum á sunnudeginum 16. júní. Um er að ræða nýung á hátíðinni en þá munu tónlistarkonurnar Theodóra Þorsteinsdóttir og Zsuzsanna Budai bjóða heim til sín á stofutónleika. Stofutónleikarnir verða eitthvað styttri í tímalengd en venjulegir tónleikar og þær bjóða til sín góðum gestum sem koma fram með þeim. Léttar veitingar verða í boði á hvorum tónleikastað. Tónleikarnir hjá Theodóru hefjast kl. 14.30 og hjá Zsuzsönnu kl. 16.00, þannig að gestum gefst góður tími til að ganga á milli tónleika ef þeir vilja fara á báða tónleikana. Vert er að geta þess að sökum þess að tónleikarnir eru á heimilum listamannanna þá verða einungis fimmtíu miðar í boði á hvora tónleika.