Farið verður yfir allar helstu perlur jólalaga á einum og hálfum tíma. Það sem meira er að þessir tónleikar verða aðallega leiknir bara á hljóðfæri og rekur saxófónninn þar með lestina aðallega og spilar laglínuna. Einnig verða sungin 3 lög.
Frábærir spilarar af öllu tagi sem leggja áherslu á vel spilaða tónlist.
Tónleikarnir verða í pop og smoothjazz búningi og verður kósí stemning í Gamla bíó þann 14. desember.
Á tónleikunum verður boðið upp á piparkökur, djús og heitt kakó.