Tuttugu ára frá því að “FARIN" fór í fyrsta sæti
20 ára höfundar afmælistónleikar í bæjarbíó 16. nóvember
Sögustund og sing-along með smellum Einars Bárðar
Einar Bárðar fagnar 20 ára höfundarafmæli sínu með sögustund og singalong tónleikum í Bæjarbíó 16. nóvember næst komandi. Vel valin lög af ferli hans eru nú í endurgerð og verða gefin út með haustinu. Fyrsta lagið væntanlegt í spilun eftir helgi. Fjöldi frábæra tónlistarmanna kemur að upptökunum og tónleikunum. Á tónleikunum mun Einar fara yfir sögurnar á bak við sín vinsælustu lög og flytja þær með sínu nefi ásamt vinum og félögum.
Einar Bárðarson athafnaskáld fagnar um þessar mundir 20 ára höfundar afmæli en í apríl voru 20 ár frá því lagið „Farin“ með hljómsveitinni Skítamóral kom út. Það var fyrsta lagið sem Einar samdi og gefið var út og vinsældir lagsins urðu slíkar að það varð aldrei aftur snúið. Lögin urðu nokkur í kjölfarið en það var svo ekki fyrr en lagið Birta eftir Einar vann forkeppni Söngvakeppni Evrópskra sjónvarpsstöðva að Einar varð „heimsþekktur“ á Íslandi en í framhaldi af því upphófs mikil og dramatísk deila við Útvarpsráð um það á hvaða máli yrði sungið í keppninni erlendis.
Um og uppúr síðustu aldamótum var Einar Bárðarson fyrirferðarmikill laga og texta höfundur. Hann samdi mörg af vinsælustu lögum Skítamórals, Á móti sól og Nylon flokksins. Þá samdi hann vinsæl lög fyrir flytjendur á borð við Stjórnina, Björgvin Halldórsson, Jóhönnu Guðrúnu, Ingó og Veðurguðina, Hvanndalsbræður, Garðar Thór Cortes, og fleiri.
Í ár fagnar Einar Bárðarson 20 ára höfundarafmæli en núna í júní eru 20 ár frá því að lagið Farin með Skítamóral kom út, fyrst laga hans. Farin náði 1. Sæti íslenska vinsældalistans í sama mánuði og sat þar í þrjár vikur. Svo komu lögin eitt af öðru sem heimsóttu þann ágæta lista; Birta, Spenntur, Myndir, Ennþá, Ég sé þig og fleiri og fleiri.
Lög Einars hafa alltaf fengið ágætan meðbyr í útvarpi og þrátt fyrir að mörg laganna séu kominn á tvítugs aldurinn heyrast þau enn með jöfnu milli bili á stærstu útvarpstöðum landsins. Einar hefur þó nokkuð fágæta stöðu í hópi dægurlaga höfunda á Íslandi þar sem hann er einn örfárra höfunda á Íslandi sem aldrei hefur flokkast sem flytjandi enda hefur hann aldrei gefið út efni undir eigin nafni eða komið fram sem slíkur.
Nú verður hinsvegar gerð örlítil dagskrár breyting út frá þessari hefð en í tilefni áfangans er verið að vinna hljómplötu með vinsælustu lögum Einars þar sem hann mun taka þátt í flutningnum. Þá verða útgáfutónleikar í tengslum við útgáfu plötunnar sem fara fram í nóvember en þar mun Einar koma fram ásamt völdu tónlistarfólki og nokkrum valinkunnum söngvurum sem bæði hafa unnið með Einari áður og þeim öðrum aldrei hafa tekist á við efni höfundar áður. Á tónleikunum mun Einar fara yfir sögurnar á bak við sín vinsælustu lög og flytja þær með sínu nefi ásamt vinum og félögum.
Það er tónlistarmaðurinn og upptökustjórinn Þórir Úlfarsson sem stýrir upptökum á plötunni en hún verður bæði ljúf og hrjúf í anda höfundarins með Nashville áhrifum en Einar hefur alla tíð sótt sinn innblástur til amerískrar country-skotinnar dægurtónlistar. Á plötunni er ætluninni að setja ákveðna heildarmynd á þessi vinsælustu lög og hans og hugmyndin að þessi helstu verk höfundar fái nýtt og heimilislegt líf í flutningi hans og félaga.
Platan hefur fengið nafnið „Myndir“ sem er vitaskuld tilvísun í eitt þekktasta lag Einars en um leið eru lögin hversdagslýsingar á lífi fólks eða myndir af lífi þeirra eins og höfundurinn útskýrir nafngiftina. Platan mun koma út í haust en upptökur er langt komnar.
Útgáfu- og afmælistónleikar verða haldnir í Bæjarbíói föstudaginn 16. Nóvember en þar mun ásamt einvalaliði hljóðfæraleikarar slá á létta strengi með höfundinum.
Miðasala á "sögustund og singalong" í Bæjarbíó hefst núna á mánudag, 24 september klukkan 10:00 á midi.is