Rock Paper Sisters og Vicky blása til tónleika á Gauknum.
Verður þetta í annað skipti sem Rock Paper Sisters kemur fram en fyrstu tónleikarnir voru í Laugardalshöll þegar sveitin hitaði upp fyrir Billy Idol. Hljómsveitina Vicky þarf vart að kynna en sveitin vakti á sínum tíma mikla athygli hérlendis og á erlendri grundu. Þau gáfu nýverið út 2 ný lög og ómar lagið String Along í útvarpinu þessa dagana.
Báðar sveitirnar koma fram á Iceland Airwaves og er þetta tilvalin upphitun fyrir herlegheitin.