Quantcast
Channel: Miði.is
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2696

Útvarp Satan - útgáfutónleikar - Tónleikar

$
0
0

Ljóðapönksveitin Austurvígstöðvarnar sendi frá sér hina umdeildu hljómplötu Útvarp Satan í sumar og vakti hún talsverða eftirtekt ekki síst fyrir hárbeitta ádeilutexta Davíðs Þórs Jónssonar. Í tilefni af útgáfu plötunnar hafa Austurvígstöðvarnar verið duglegar við tónleikahald og spilaði hljómsveitin meðal annars á rokkhátíðinni Eistnaflugi í sumar við góðar undirtektir. 

Nú er komið að útgáfutónleikum í Bæjarbíói í Hafnarfirði þar sem Útvarp Satan verður leikin í heild sinni. 

Austurvígstöðvarnar voru stofnaðar á Reyðarfirði árið 2016 og markmið sveitarinnar hefur frá upphafi verið að flytja blóðhráa, grimmpólitíska og andfasíska pönktónlist. Hljómsveitina skipa: Davíð Þór Jónsson, Díana Mjöll Sveinsdóttir, Helga Elísabet Beck Guðlaugsdóttir, Jón Hafliði Sigurjónsson, Jón Knútur Ásmundsson og Þórunn Gréta Sigurðardóttir. 

Á tónleikunum kemur einnig fram hin goðsagnakennda pönkhljómsveit Saktmóðigur sem er flestum rokkunnendum á Íslandi vel kunn en sveitin gaf nýlega út sína áttundu afurð, breiðskífuna Lífið er lygi. Saktmóðigur hefur leikið á ótal tónleikum í gegnum tíðina og síðustu ár hefur sveitin átt fastan sess á rokkhátíðinni Eistnaflugi. Sendi Saktmóðigur m.a. frá sér afmælisbraginn Eistnaflugsdans í tilefni af tíunda Eistnafluginu árið 2015. 

Tónleikarnir verða haldnir sem fyrr segir í Bæjarbíói, Hafnarfirði, þriðjudaginn 4. september. Húsið opnar 19:30 og talið verður í fyrsta lag stundvíslega klukkan 20:30. Helgi Seljan, sjónvarpsmaðurinn góðkunni, mun kynna böndin á sviðið og halda uppi stemmningu á milli atriða. 

Aðgangseyrir er 3.990 krónur. Miðasala á midi.is 



Viewing all articles
Browse latest Browse all 2696

Trending Articles


Girasoles para colorear


mayabang Quotes, Torpe Quotes, tanga Quotes


Tagalog Quotes About Crush – Tagalog Love Quotes


OFW quotes : Pinoy Tagalog Quotes


Long Distance Relationship Tagalog Love Quotes


Tagalog Quotes To Move on and More Love Love Love Quotes


5 Tagalog Relationship Rules


Best Crush Tagalog Quotes And Sayings 2017


Re:Mutton Pies (lleechef)


FORECLOSURE OF REAL ESTATE MORTGAGE


Sapos para colorear


tagalog love Quotes – Tiwala Quotes


Break up Quotes Tagalog Love Quote – Broken Hearted Quotes Tagalog


Patama Quotes : Tagalog Inspirational Quotes


Pamatay na Banat and Mga Patama Love Quotes


Tagalog Long Distance Relationship Love Quotes


BARKADA TAGALOG QUOTES


“BAHAY KUBO HUGOT”


Vimeo 10.7.0 by Vimeo.com, Inc.


Vimeo 10.7.1 by Vimeo.com, Inc.