Föstudagskvöldið 17. ágúst verður hátíð í Ólafsfjarðarkirkju þegar Bjarni Frímann Bjarnason kemur fram ásamt Kristjáni Jóhannssyni tenórsöngvara, Ólöfu Sigursveinsdóttur sellóleikara, Eyjólfi Eyjólfssyni tenórsöngvara og Veru Panitch fiðluleikara á Berjadögum. Hér verður brugðið út af vananum með galakvöldi í kirkjunni og reidd fram hver krásin á fætur annari af gnægtaborði tónbókmenntanna.
Kristján Jóhannsson flytur meðal annars hina frægu aríu „Vesti la giubba“ eftir Leoncavallo og „Gígjuna“ ástælu eftir Sigfús Einarsson. Á tónleikunum hljómar einnig hin fagra „Arpeggione” sónata eftir Schubert í flutningi Ólafar Sigursveinsdóttur og Bjarna Frímanns. Eyjólfur Eyjólfsson tenór syngur ennfremur sjaldheyrð þjóðlög úr ranni Beethovens þar sem píanótríó Veru, Ólafar og Bjarna fær að njóta sín. Einn af hápunktum kvöldsins verður vafalaust þegar Bjarni leikur einleik á slaghörpuna í Ólafsfjarðarkirkju.
Hátíðarpassi: 7.000 kr. (Allir viðburðir)
Frítt fyrir börn og unglinga 18 ára og yngri
Blueberry Festival Gala Evening: Bjarni Frímann, Kristján Jóhannsson and others
The Blueberry Music Festival 20th Anniversary
There will be a feast in Ólafsfjörður Church on Friday August 17th when Bjarni Frímann Bjarnason performs with our renowned tenor Kristján Jóhannsson, cellist Ólöf Sigursveinsdóttir, tenor Eyjólfur Eyjólfsson and violinist Vera Panitch. This extraordinary gala evening of the Blueberry Music Festival exhibits several delicacies from the abundant riches of the musical repertoire.
Kristján Jóhannsson performs among other works the famous aria ?Vesti la giubba“ by Leoncavallo and the beloved ?Gígjan“ by Sigfús Einarsson. The concert also features the beautiful sonata ?Arpeggione“ by Schubert performed by Ólöf Sigursveinsdóttir and Bjarni Frímann. In addition, Eyjólfur Eyjólfsson sings lesser known folksongs by Beethoven with the piano trio of Vera, Ólöf and Bjarni Frímann. One of the highlights of the evening is Bjarni Frímann´s solo performance on the Ólafsfjörður Church piano.
Berjadagar Festival Pass: 7.000 kr. (all events)
Free entrance for children up to 18 years of age