Organisti Dómkirkjunnar í Reykjavík, Kári Þormar, leikur verk eftir Bach, Vierne (Carillon de Westminster), Tryggva M. Baldvinsson (Toccata Jubiloso), Böhm og Duruflé.
Kári Þormar, organist of the Reykjavik Cathedral, plays pieces by Bach, Vierne (Carillon de Westminster), Baldvinsson, Böhm and Duruflé.
Efnisskrá/ Programme
Johann Sebastian Bach 1685 -1750
Tokkata í d-moll (dórísk), BWV 538/1
Louis Vierne 1870 - 1937
Carillon de Westminster op. 54 nr. 6
Úr/From: „Pieces de fantasie“
Tryggvi M. Baldvinsson f. 1965 Toccata Jubiloso, 2003
Maurice Duruflé 1902 - 1986
Choral varié sur le 'Veni Creator' op.4/3, 1930
Eftir píanónám hjá Jónasi Ingimundarsyni og orgelnám hjá Herði Áskelssyni hélt Kári Þormar í framhaldsnám til Þýskalands þar sem hann lauk A kirkjutónlistarnámi frá Robert Schumann háskólanum í Düsseldorf með 1. einkunn.
Kári hefur haldið fjölda orgeltónleika, bæði hér heima og erlendis, þar á meðal á alþjóðlegri orgelhátíð á Álandseyjum og á alþjóðlegri tónlistarhátíð í Mühlhausen í Þýskalandi. Hann hlaut styrk úr minningarsjóði Karls Sighvatssonar árið 1997. Kári hefur verið atkvæðamikill í íslensku tónlistarlífi sem organisti, píanókennari og kórstjóri en á þeim vettvangi var hann tilnefndur til íslensku tónlistarverðlaunanna með Kór Áskirkju fyrir geisladiskinn Það er óskaland íslenskt. Kári tók við stöðu dómorganista við Dómkirkjuna í Reykjavík árið 2010. Þá er Kári stjórnandi kórs MR og starfar einnig við Menntaskóla í tónlist.
After piano studies with Jónas Ingimundarson and organ studies with Hörður Áskelsson, Kári Þormar moved to Germany where he graduated with a church musician‘s diploma with distinction from the Robert Schumann Hochschule in Düsseldorf. Hans-Dieter Möller was his organ teacher and he studied choral and orchestra conducting with Volker Hempfling.
Kári has given numerous organ concerts, both in Iceland and abroad. He has performed at the Åland International Organ Festival and the International Organ Festival in Mühlhausen, Germany. He has paid particular attention to the works of the French masters, his performances of which have received critical acclaim. Kári has been very active in the Icelandic music scene as an organist, pianist and choir conductor. As a conductor he was nominated for the Icelandic Music Awards, along with the choir of Áskirkja, Reykjavík, for the CD recording Það er óskaland íslenskt. In 2010 Kári was appointed organist of Reykjavík Cathedral. He is also the director of the MR Junior College Choir and teaches at the Reykjavík College of Music.