Quantcast
Channel: Miði.is
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2696

RUMOURS - Til heiðurs Fleetwood Mac - Tónleikar

$
0
0

Fimmtudagskvöldið 11. október nk. mun föngulegur hópur íslenskra tónlistarmanna stíga á svið í Bæjarbíó Hafnarfirði og flytja tónlist Fleetwood Mac, einnar allra vinsælustu hljómsveitar rokksögunnar.

Ferli Fleetwood Mac má gróflega skipta í tvennt. Upphafstímabilið þar sem blústónlistin var allsráðandi og höfuðpaur sveitarinnar, hinn magnaði Peter Green réð ríkjum, og svo tímabilið sem hófst þegar Stevie Nicks og Lindsey Buckingham gengu í hljómsveitina. Hljómplatan Rumours kom út árið 1977 og sló sannarlega í gegn því hún sat í efsta sæti Billboard listans í Bandaríkjunum samfleytt í 7 mánuði. Rumours er fjórða söluhæsta hljómplata sögunnar og hefur selst í meira en 45 milljónum eintaka enda inniheldur hún ódauðleg lög eins og Don't Stop, Dreams, Go Your Own Way, Songbird og Second Hand News.

Á tónleikunum flytur hópurinn meistaraverkið Rumours í heild sinni ásamt úrvali vinsælustu laga Fleetwood Mac. Má þar nefna Little Lies, Albatross, Black Magic Woman, Hold Me, Seven Wonders, Gypsy, Big Love, Tusk og Rhiannon.

Um sönginn sjá RAGNHEIÐUR GRÖNDAL, MAGNI, SIGRÍÐUR THORLACIUS OG ALMA RUT.

Hljómsveitina skipa Einar Scheving (trommur), Eiður Arnarsson (bassi), Kjartan Valdemarsson (hljómborð) og Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson (gítar, raddir)


Viewing all articles
Browse latest Browse all 2696

Trending Articles


Girasoles para colorear


mayabang Quotes, Torpe Quotes, tanga Quotes


Tagalog Quotes About Crush – Tagalog Love Quotes


OFW quotes : Pinoy Tagalog Quotes


Long Distance Relationship Tagalog Love Quotes


Tagalog Quotes To Move on and More Love Love Love Quotes


5 Tagalog Relationship Rules


Best Crush Tagalog Quotes And Sayings 2017


Re:Mutton Pies (lleechef)


FORECLOSURE OF REAL ESTATE MORTGAGE


Sapos para colorear


tagalog love Quotes – Tiwala Quotes


Break up Quotes Tagalog Love Quote – Broken Hearted Quotes Tagalog


Patama Quotes : Tagalog Inspirational Quotes


Pamatay na Banat and Mga Patama Love Quotes


Tagalog Long Distance Relationship Love Quotes


BARKADA TAGALOG QUOTES


“BAHAY KUBO HUGOT”


Vimeo 10.7.0 by Vimeo.com, Inc.


Vimeo 10.7.1 by Vimeo.com, Inc.