HJARTA HAFNARFJARÐAR - TÓNLISTAR OG BÆJARHÁTÍÐ
Í annað sinn verður haldin tónlistar-og bæjarhátíðin "Í hjarta Hafnarfjarðar" Boðið verður upp á alls 5 tónleika með 10 listamönnum en þeir eru:
-Agent Fresco
-Ylja
-Björgvin Halldórsson ásamt hljómsveit
-Prins Póló
-Bjartmar Guðlaugsson ásamt hljómsveit
-Eyþór Ingi Gunnlaugsson
-Hjálmar
-Sverrir Bergman og Halldór Gunnar
-Blúsmenn Andreu
AGENT FRESCO
Það er svo sannarlega við hæfi að Agent Fresco opni Hjarta Hafnarfjarðar upp á gátt. Hljómsveitin á 10 ára afmæli á þessu herrans ári og er viðkoma þeirra í Bæjarbíói hluti af afmælistónleikaröð sem stendur yfir allt árið!
Agent Fresco stígur á svið kl 21:00
YLJA
Á undan Agent Fresco mun Ylja, sem eiga rætur sínar að rekja til Hafnarfjarðar koma fram. Hljómsveitin hefur vakið verðskuldaða athygli fyrir frábærar lagasmíðar og framkomu
ÞAÐ SEM VERT ER AÐ VITA
-Bæjarbíó opnar kl 19:00
-Útisvæði opnar kl 19:00
-Ylja kl 20:00
-Agent Fresco kl 21:00
-Útisvæði lokar kl 00:00
-Bæjarbíó lokar kl 01:00