Hljómsveitin VICKY er komin aftur saman og heldur tónleika á Gauknum 2. júní ásamt fleirum. Þetta eru fyrstu tónleikar sveitarinnar síðan á 2012 og liðsmenn lofa mögunuðu rokkpartý með bæði nýjum og gömlum hitturum. Hljómsveitin Casio Fatso mun einnig koma fram á tónleikum og fleiri tilkynnt síðar.
VICKY var mikið starfandi á árunum 2007-2012. Árið 2008 gáfu þau út sína fyrstu breiðskífu, Pull Hard og 2011 kom seinni breiðskífan, Cast a Light út. Báðar plöturnar fengu góða dóma hérlendis og erlendis og áttu nokkur lög á vinsældarlistum. Þar ber helst að nefna lagið Blizzard af Pull hard, Lullaby og Feel Good af Cast a Light. Sveitin fékk góða dóma fyrir plötur og tónleika frá ýmsum gagnrýnendum þ.á.m tónlistartímaritunum Kerrang! og Rolling Stone Magazine. Í desember síðastliðinn rufu þau þögnina með laginu "Run From Me" og næsta lag fer í spilun á næstu dögum.