Reynir Hauksson – Flamenco
Flamenco gítarleikarinn Reynir Hauksson heldur í tónleikaferð um Ísland í byrjun sumars.
Samtals verða þetta sex tónleikar á jafnmörgum stöðum á Vestur- og Suðvesturlandi.
Reynir býr í Granada, Spáni og starfar þar sem Flamenco gítarleikari.
Það heyrir til tíðinda að Flamenco tónlist sé flutt á Íslandi, svo sjaldgæft er það.
Draumur hans er að kynna og tengja þessa mögnuðu list við Ísland.
Reynir mun flytja þekkt Flamenco verk frá Andalúsíu í bland við eigin tónsmíðar.
Miðasala á midi.is og við hurð
Miðaverð 2000 kr.