
Borgardæturnar, Andrea Gylfadóttir, Ellen Kristjánsdóttir og Berglind Björk Jónasdóttir ætla að vera á Græna Hattinum Föstudaginn 18. oktober og flytja akureyringum og nærsveitarmönnum skemmtidagskrá sem enginn má láta fram hjá sér fara.. Þær fagna 20 ára afmæli í ár . Með dætrunum leikur að venju Eyþór Gunnarsson á píanó en hann hefur verið útsetjari og meðlimur frá upphafi.
Á efnisskrá eru lög úr ýmsum áttum frá 20 ára ferli, gamanmál og almenn skemmtilegheit. Ekki láta þig vanta!
18 ára aldurstakmark.