Efnisskrá föstutónleika Mótettukórsins undir yfirskriftinni Ákall er samansett af áhrifaríkum trúarlegum kórverkum sem fjalla um missi, sorg, bæn og huggun í skugga krossins á árstíma píslarsögu Krists og Passíusálma Hallgríms Péturssonar. Stærsta tónverkið, When David heard eftir Eric Whitacre, er tónsetning á sorgarákalli Davíðs konungs (2. Samúelsbók), þegar hann frétti af aftöku sonar síns Absaloms og vék afsíðis og hrópaði nafn sonar síns í sífellu. Inn á milli þekktra kórverka eftir erlend tónskáld eldri og yngri, þá Purcell, Byrd, Casals, Lauridsen og Tavener, hljóma sálmar Hallgríms með tónlist eftir íslenska höfunda, bæði útsetningum eldri laga og frumsaminni tónlist. Á tónleikunum frumflytur kórinn mótettu sem Halldór Hauksson samdi við andlátsbæn Hallgríms Péturssonar.
Mótettukór Hallgrímskirkju er skipaður 55 söngvurum. Stjórnandi kórsins er Hörður Áskelsson.