Sycamore Tree heldur tónleika í Bæjarbíói Hafnafirði, fimmtudagskvöldið 15. Mars kl. 20. Ásamt því að spila efni af plötu sinnu SHELTER þá mun hljómsveitin einnig spila nýtt efni. Tónleikar Sycamore Tree hafa hingað til verið einstaklega vel sóttir og bera tónleikagestir gott orð af framistöðu sveitarinnar á sviði. Tónlist þeirra Ágústu Evu Erlendsdóttur og Gunna Hilmarssonar hefur fengið mikla spilun á öldum ljósvakans og voru þau tilnefnd til fjögurra verðlauna á hlustendaverðlaununum á dögunum. Ágústa Eva var einmitt valin söngkona ársins á verðlaununum á dögunum. Þeim til fulltingis verða Unnur Birna Björnsdóttir og Arnar Guðjónsson. Miðaverð er 4490 kr. Forsala er á midi.is.
↧