Jónas SIg og Ritvélar framtíðarinnar spila í Fish House í Grindavík laugardaginn 16. desember!
Jónas Sig og Ritvélar framtíðarinnar eru annáluð fyrir lifandi flutning á lögum og textum Jónasar en hann hefur gefið út þrjár plötur og hafa fjölmörg lög hlotið verðskuldaða athygli og ratað hátt á vinsældarlistum landsins.
Á tónleikunum verður hægt að kaupa "best of" plötu sem inniheldur öll vinsælustu lög Jónasar ásamt lifandi upptökum og áður óútgefnu efni, en sú plata kom út í fyrra og hefur bara fengist á tónleikum hljómsveitarinnar.