PAPAR-ÞIÐ MUNIÐ HANN JÓNAS
Í haust komu Papar saman ásamt góðum gestum saman í Bæjarbíói í Hafnarfirði með tónleika sem hlotið hafa nafnið "þið munið hann Jónas" Eins og nafnið gefur til kynna þá fluttu Paparnir lög við texta Jónasar Árnasonar. Papar gáfu út Riggarobb og Þjóðsögu sem innihéldu eingöngu lög við texta Jónasar. Var þetta uppistaða tónleikanna. Í tilefni af ótrúlega miklum og góðum viðbrögðum hefur verið ákveðið að endurtaka leikinn 27. janúar 2018 í Bæjarbíói
Verkefnið er styrkt af miklum myndarskap af Menningar-og ferðamálanefnd Hafnarfjarðar og eru Papar afar þakklátir fyrir það!
HLJÓMSVEITIN OG AÐSTOÐARFÓLK
Papar eru skipaðir 6 einstaklingum sem hafa verið mislengi í hljómsveitinni og nær það allt frá stofnun hennar árið 1986 og til 2011 þegar "nýjasti" meðlimurinn gekk í Papana en það er Bergsveinn Arilíusson söngvari. Auk hinna hefðbundnu Papa hafa þeir fengið til liðs við sig 7. Papann sem er Börkur Hrafn Birgissson sem spilar á kassagítar. Ólafur Páll Gunnarsson mun sjá um að ramma tónleikana inn með fróðleiksmolum um Jónas og öðru sem tengist tónlistinni og textunum hans. Vandað verður til verks og lofar hópurinn einstakri kvöldstund í Bæjarbíói-Hjarta Hafnarfjarðar. Hópurinn sem setur upp Þið munið hann Jónas samanstendur þá af eftirfarandi einstaklingum
Páll Eyjólfsson Harmonikka og hljómborð
Dan Cassidy Fiðla
Eysteinn Eysteinsson Trommur
Bergsveinn Arilíusson Söngur
Matthías Stefánsson Gítar og banjó
Gunnlaugur Helgason Bassi
Börkur Hrafn Birgisson Kassagítar
Ólafur Páll Gunnarsson Sögumaður, kynnir, heimildarsafnari og innrammari
ÞAÐ SEM VERT ER AÐ VITA
Staðsetning Bæjarbíó Hafnarfirði
Dagsetningar 27. janúar
Tímasetning Tónleikar byrja kl 20:30
Hús opnar kl 20:00
Miðasala midi.is
miðaverð 4.990 kr
Allar nánari upplýsingar er að finna
Facebook síða prime
Facebook síða Papa