Quantcast
Channel: Miði.is
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2696

Sálmar á nýrri öld - Tónleikar

$
0
0

"Sálmar á nýrri öld"
Kammerkórinn Schola cantorum
Stjórnandi: Hörður Áskelsson 

Listvinafélag Hallgrímskirkju og Hallgrímssöfnuður standa fyrir Lúthersdögum í Hallgrímskirkju 26. - 31. október nk.  í tilefni af 500 ára afmæli siðbótarinnar sem nú er minnst um allan heim. Til að kallast á við Lúther og sálmana, sem Lúther vildi að fluttir væru á móðurmálinu býður kammerkórinn Schola cantorum til tónleika í Hallgrímskirkju föstudagskvöldið 27. október klukkan 20.00 undir yfirskriftinni “Sálmar á nýrri öld”, en þar flytur kórinn eingöngu sálma eftir Aðalstein Ásberg Sigurðsson og Sigurð Flosason. Sálmalögin, sem eru sett út fyrir fjögurra radda kór, eru sungin án undirleiks. 

Þessir hugljúfu og hrífandi sálmar Aðalsteins og Sigurðar hafa þegar margir öðlast vinsældir en Skálholtsútgáfan gaf sálmana út í kórbókaröðinni Söngvasveigur árið 2010. Í formála bókarinnar stendur: “Efnistök Sálma á nýrri öld eru víðfeðm, lofgjörð, bæn, gleði, sorg, kirkjuathafnir, kirkjuár, morgunn og kvöld, sumir eiga sér óræðan stað í tíma og rúmi og falla varla undir hefðbundnar skilgreiningar á sálmi.” Þess má geta að Schola cantorum syngur sálmana inn á geislaplötu í næsta mánuði.

Schola cantorum er í  fremstu röð kóra á Íslandi og hefur hlotið margvíslegar viðurkenningar fyrir söng sinn, m.a. Íslensku tónlistarverðlaunin sem flytjandi ársins 2016 og geislaplata kórsins Meditation hefur hlotið einróma lof gagnrýnenda víða um heim.Hrífandi fallegir og fjölbreyttir sálmar, sem allir geta notið í fallegu umhverfi kirkjunnar.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 2696

Trending Articles


tagalog love Quotes – Tiwala Quotes


Vimeo 10.7.0 by Vimeo.com, Inc.


Confidence Quotes – Confident Quotes


Tagalog Love Quotes – Nagmamahal


Break up Quotes Tagalog Love Quote – Broken Hearted Quotes Tagalog


Tropa Quotes


INUMAN QUOTES


Re:Mutton Pies (lleechef)


Vimeo 10.7.1 by Vimeo.com, Inc.


Sapos para colorear


Pokemon para colorear


Long Distance Relationship Tagalog Love Quotes


Problema Quotes – Pera Quotes


Tagalog Quotes About Crush – Tagalog Love Quotes


Patama Quotes : Tagalog Inspirational Quotes


5 Tagalog Relationship Rules


Best Love Life Quotes Collection


FORECLOSURE OF REAL ESTATE MORTGAGE


Girasoles para colorear


mayabang Quotes, Torpe Quotes, tanga Quotes