::: Syngjum saman: Söngstund fyrir alla fjölskylduna! Textunum er varpað á tjald og tónlistarfólk leiðir sönginn. :::
Forsöngvarar að þessu sinni er sönghópurinn Skotfjelagið. Skotfjelagið kynntist fyrst í kórstarfi hjá Margréti Pálmadóttur fyrir meira en 20 árum og nokkrar þeirra syngja enn með kvennakórnum Vox Feminae. Makar þeirra eru einnig mjög söngelskir og þegar vinahópurinn hittist er ávallt mikið sungið. Skotfélagið og maka skipta þau Björg Helen Andrésdóttir, Guðný Jónsdóttir og Kári Ragnarsson, Hallveig Andrésdóttir og Einar Sigurmundsson, Helga Jóna Óðinsdóttir og Gylfi Ívar Magnússon, Hulda Stefánsdóttir og Sverrir Ólafsson, Sigríður anna Ellerup og Geir Gunnlaugsson.
Börn fá frítt í fylgd með fullorðnum sem greiða 1000 kr. Miðasala á midi.is og hlekknum hér að neðan. Viðburðurinn hefst kl. 14:00 og stendur í klukkustund.
Opið er í Veitingastofum Hannesarholts fyrir og eftir viðburðinn og því tilvalið að hittast í helgarbrunch eða kaffi og köku, fyrir eða eftir sönginn.
Sjáumst á samsöng í Hannesarholti!