Stutt lýsing: Verið velkomin á tónleikaröðina Alþjóðlegt orgelsumar Hallgrímskirkju 2017. Í 25.sinn verður sumarið í Hallgrímskirkju fyllt af orgelómum. Í ár koma fram afburða konsertorganistar í fremstu röð frá ýmsum löndum. Helgina 15.-16. júlí er það Rússneskt orgeldúó frá St. Pétursborg Denis Makhankov og Dina Ikhina sem leika fjórhent og fjórfætt á stórfenglega Klais orgelið. Þau munu takast á við umritanir á þáttum úr frægum rússneskum hljómsveitarverkum eins og Myndum á sýningu (M.Mussorgsky) og Hnotubrjótnum (P.Tchaikovsky). Þau munu einnig flytja tónlist eftir S. Tanayev, M. Traiverdiev, I. Dunayevsk, Y. Butsko, G. Mushel og K. Kushnarev.
16. JÚLÍ 2017 KL. 17.00
DINA IKHINA OG DENIS MAKHANKOV
ORGELDÚÓ ST. PÉTURSBORG Í RÚSSLANDI
TÓNLIST EFTIR: M.MUSSORGSKY (FROM PICTURES AT AN EXHIBITION), P. TCHAIKOVSKY (NUTCRACKER), DUNAYEVSKY OG FLEIRI RÚSSNESK TÓNSKÁLD
Denis Makhankov lauk framhaldsnámi í orgelleik árið 2013 frá N.A. Rimsky Korsakov ríkistónlistarháskólanum í St. Pétursborg. Meðan á námi hans stóð hlaut hann fyrstu verðlaun í ýmsum keppnum ungra listamanna, m.a. í Kaliningrad, Moskvu og í heimaborg sinni. Þá hefur hann tekið þátt í mörgum meistaranámskeiðum m.a. í Finnlandi, Þýskalandi og Frakklandi.
Denis hefur komið fram á tónleikum og orgelhátíðum víða í Rússlandi en einnig í Evrópu og síðan árið 2014 hefur hann myndað dúó með Dinu Ikhinu. Á síðustu árum hefur hann verið listrænn stjórnandi og lagt grunninn að orgelhátíðum í Eistlandi og í vesturhluta Rússlands. Denis hefur lagt sig fram við að kynna orgeltónlist víða í Karelia-héraði Rússlands (landamæri að Finnlandi) og hefur hann og Dina fengið viðurkenningar fyrir framtak sitt.
Dina Ikhina stundaði fyrst nám við L.V. Sobinov Saratov ríkistónlistarháskólann og árið 2011 lauk hún MMus í orgelleik við tónlistardeild háskólans í St. Pétursborg og árið 2014 lauk hún einnig framhaldsnámi í orgelleik frá N.A. Rimsky Korsakov ríkistónlistarháskólanum í St. Pétursborg. Hún hefur unnið nokkrar orgelkeppnir og tekið þátt í meistaranámskeiðum, m.a. í Hollandi, Austurríki og Þýskalandi.
Dina hefur komið fram á tónleikum, bæði sem einleikari og með öðrum, víða í Rússlandi og í Evrópu. Þá hefur hún síðan 2014 myndað dúó með Denis Makhankov. Dina Ikhina er listrænn stjórnandi nokkurra orgelhátíða í Eistlandi og í Karelia héraðinu upp við finnsku landamærin. Hún tekur einnig þátt í að skipuleggja orgelhátíðir til að safna peningum til að endurgera gömul orgel á svæðinu. Hún hefur hlotið viðurkenningar fyrir framtak sitt á þessu sviði. Frá 2013 hefur hún kennt orgelleik við N.A. Rimsky-Korsakov ríkistónlistarháskólann.
EFNISSKRÁ:
16. júlí kl. 17.00:
Denis Makhankov og Dina Ikhina, organistar í Pechory í Pskov héraði Rússlands
Modest Mussorgsky 1839?1881
Great Gate
Úr / From: Myndir á sýningu / Pictures at an Exhibition
Sergey Tanayev 1856–1915
Choral variations
Pyotr Tchaikovsky 1840–1893
Dance of the Sugar Plum Fairy
Chinese dance
Úr Hnetubrjótnum / From the Nutcracker
Umr. / Trancs.: Alexander Därr
Mikael Traiverdiev 1931?1996
Prelúdía nr. 8 op. 103
Basso ostinato úr Orgelkonsert nr. 2
Isaak Dunayevsky 1900–1955
Forleikur / Prelude
Úr kvikmyndinni Börn Grants skipstjóra
Umr. / Trancs.: Dina Ikhina
Yuri Butsko 1938?2015
Vagrant Russia for the Sake of Christ
Gregory Mushel 1909?1989
Toccata úr Uzbek svítunni
Khristofor Kushnarev 1890?1960 Passacaglia
Pyotr Tchaikovsky Pas de deux
Úr Hnetubrjótnum / from the Nutcracker
Umr. / Trancs.: Alexander Därr