Quantcast
Channel: Miði.is
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2696

Alþjóðlegt Orgelsumar - Tónleikar

$
0
0

Stutt lýsing: Á Alþjóðlegu orgelsumri 2017, sem nú er haldið 25. sumarið í röð koma fram afburða konsertorganistar í fremstu röð frá ýmsum löndum. Fimmtudaginn 6.júlí kl.12.00-12.30 mun Kitty Kovacs, organisti í Landakirkju í Vestmannaeyjum flytja Passacaglíu og fúgu í c-moll eftir sjálfan J.S. Bach og einnig mjög spennandi verk eftir Zsolt Gárdonyi. Kitty mun flytja bæði verkin á stórfenglega Klais orgel Hallgrímskirkju, en það er stærsta hljóðfæri landsins.


6. júlí kl. 12.00:
Kitty Kovacs, Landakirkju í Vestmannaeyjum
Efnisskrá

Johann Sebastian Bach 1685–1750
                                           Passacaglia og fúga í c-moll, BWV 582

Zsolt Gárdonyi *1946                                                       EGATOP
                                               Hommage à Erroll Garner + Art Tatum + Oscar Peterson 
  Grand Cheur

Kitty Kovács er fædd í Gyor í Ungverjalandi árið 1980 og útskrifaðist árið 2003 frá tónlistardeild Széchenyi István háskólans þar í borg með diplómu í píanó- og kammertónlist. Eftir útskriftina starfaði hún sem undirleikari í Gyor og lagði síðan stund á undirleikaranám við Ferenc Liszt Akademíuna í Budapest. Á námsárum sínum vann hún í píanókeppnum, m.a. árið 1997 í Salt Lake City og árið 2000 varð hún í 3. sæti í Chopin keppninni.
Kitty kom til Íslands árið 2006 og hefur starfað sem píanókennari og organisti, frá árinu 2011 hefur hún verið kirkjuorganisti við Landakirkju í Vestmannaeyjum og kennari við Tónlistarskóla Vestmannaeyja.
Undanfarin 4 ár hefur Kitty stundað orgelnám við Tónskóla þjóðkirkjunnar og nú í vor lauk hún kantorsnámi þaðan. Kennari hennar þar er Lenka Mátéová.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 2696

Trending Articles


Girasoles para colorear


mayabang Quotes, Torpe Quotes, tanga Quotes


Tagalog Quotes About Crush – Tagalog Love Quotes


OFW quotes : Pinoy Tagalog Quotes


Long Distance Relationship Tagalog Love Quotes


Tagalog Quotes To Move on and More Love Love Love Quotes


5 Tagalog Relationship Rules


Best Crush Tagalog Quotes And Sayings 2017


Re:Mutton Pies (lleechef)


FORECLOSURE OF REAL ESTATE MORTGAGE


Sapos para colorear


tagalog love Quotes – Tiwala Quotes


Break up Quotes Tagalog Love Quote – Broken Hearted Quotes Tagalog


Patama Quotes : Tagalog Inspirational Quotes


Pamatay na Banat and Mga Patama Love Quotes


Tagalog Long Distance Relationship Love Quotes


BARKADA TAGALOG QUOTES


“BAHAY KUBO HUGOT”


Vimeo 10.7.0 by Vimeo.com, Inc.


Vimeo 10.7.1 by Vimeo.com, Inc.