Stórtónleikar verða haldnir í Háskólabíói miðvikudagskvöldið 10. maí. Allt andvirði seldra miða rennur til samtakanna AISHA á Gaza. Samtökin deila út styrkjum til frumkvöðlaverkefna sem miða að valdeflingu kvenna sem orðið hafa fyrir ofbeldi en eru jafnframt höfuð sinna fjölskyldna eftir fráfall eða sjúkdóma eiginmanns. AISHA eru félagasamtök til verndar fyrir konur og börn á Gaza, eins konar sambland af Stígamótum og Kvennaráðgjöfinni. Félagið Ísland-Palestína hefur stutt AISHA frá árinu 2010 og höfuðstyrktaraðili síðan þá verið María M. Magnúsdóttir.
Fram koma:
Bubbi
Sigríður Thorlacius & Högni Egilsson
KK
Ellen Kristjáns
Ragnheiður Gröndal
Bjartmar Guðlaugsson
Húsið opnar 19.30 og tónleikarnir hefjast klukkan 20.
Miðaverð er 3000 kr og tekið er við frjálsum framlögum á staðnum.