Quantcast
Channel: Miði.is
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2696

Lýra norðursins og Auðar saga djúpúðgu - Lyra fra Nord: «Unn the Deepminded – the long journey».

$
0
0

Sönghópurinn Lýran úr norðri „Lyra fra Nord“ segir sögu Auðar djúpúðgu í tali og tónum.

Tónleikarnir í Hannesarholti spanna helstu atriði úr ævi Auðar djúpúðgu, eins og sagt er frá henni í Laxdælasögu. Hópurinn hefur nýlega gefið út geisladiskinn „Det som bølger uti havet,“eða „Það sem aldan færir,“ með lögum og ljóðum eftir Rolf Aagaton, sem einnig leikur á lýru á tónleikunum ásamt John Vedde. Tone Holte syngur fyrir munn Auðar djúpúðgu og hefur einnig skrifað söguna í kringum tónlistina.

Fyrrnefndur geisladiskur kom út í desember 2016. Hann inniheldur bæði nýtt efni auk túlkunar á efni frá Víkingatímanum. Tónlistin er byggð á tónfræðilegum hugmyndum fólks um það hvernig víkingar tengdu við hrynjanda, melódíu og samhljóm örfárra tóna. Hér er einnig á ferðinni tilraun til að bera fram dýpri skilning á víkingatímanum í gegnum ljóð og lag. Í umsögn um diskinn segir að flutningurinn sé kraftmikill og ástríðufullur og að rödd Tone henti tónlistinni fullkomlega.

Lyra fra nord hefur komið fram á ýmsum víkingahátíðum í Noregi um árabil og meðlimir sveitarinnar kætast mjög yfir því að geta loks flutt sögu Auðar djúpúðgu í landinu sem hún gerði að sínu.

Saga Auðar djúpúðgu er sögð á ensku, söngvarnir eru fluttir á norsku.

Lýrurnar sem notaðar eru við flutninginn eru báðar eftirlíkingar af ævafornum lýrum sem fundust við fornleifagröft í Svíþjóð og Noregi.

Fyrir tónleikana er í boði léttur kvöldverður á sanngjörnu verði. Bóka þarf borð fyrirfram í s. 511 1904 eða senda póst á hannesarholt@hannesarholt.is


Viewing all articles
Browse latest Browse all 2696

Trending Articles


Girasoles para colorear


mayabang Quotes, Torpe Quotes, tanga Quotes


Tagalog Quotes About Crush – Tagalog Love Quotes


OFW quotes : Pinoy Tagalog Quotes


Long Distance Relationship Tagalog Love Quotes


Tagalog Quotes To Move on and More Love Love Love Quotes


5 Tagalog Relationship Rules


Best Crush Tagalog Quotes And Sayings 2017


Re:Mutton Pies (lleechef)


FORECLOSURE OF REAL ESTATE MORTGAGE


Sapos para colorear


tagalog love Quotes – Tiwala Quotes


Break up Quotes Tagalog Love Quote – Broken Hearted Quotes Tagalog


Patama Quotes : Tagalog Inspirational Quotes


Pamatay na Banat and Mga Patama Love Quotes


Tagalog Long Distance Relationship Love Quotes


BARKADA TAGALOG QUOTES


“BAHAY KUBO HUGOT”


Vimeo 10.7.0 by Vimeo.com, Inc.


Vimeo 10.7.1 by Vimeo.com, Inc.