Júníus Meyvant heldur tónleika í Bæjarbíói föstudagskvöldið 24. mars til að fagna heimkomu eftir vel heppnaða tónleikaferð um Evrópu.
Júníus Meyvant gaf út sína fyrstu breiðskífu í júlí á síðasta ári, í framhaldi hefur hann haldið uppselda útgáfutónleika í Háskólabíói, uppselda tónleikarferðir um Evrópu og fleira. Á næstunni koma út áður óútgefin lög áður en Júníus sekkur sér í að semja efni fyrir næstu plötu og slaka á tónleikaframkomum.
Júníus Meyvant kemur fram í Bæjarbíói með 8 manna hljómsveit.