Agent Fresco hefur um árabil verið ein af okkar vinsælustu rokk sveitum bæði hér heima og erlendis. Árið 2015 kom út þeirra önnur plata, Destrier. Destrier fékk mikið lof gagnrínenda bæði hér heima og einnig á alþjóðlegum tónlistarsíðum. Destrier var valin Rokk plata ársins á íslensku tónlistarverðlaununum og Arnór Dan söngvari sveitarinnar var valinn söngvari ársins.
Plötunni var fylgt eftir með tónleikaferðum um gjörvalla Evrópu og nú eru strákarnir nýkomnir heim af 10 vikna tónleikaferðalagi þar sem þeir spiluðu hátt í 50 tónleika með viðkomu í 26 löndum.
Tónleikarnir í Bæjarbíói Hafnarfirði verða þeir fyrstu á Íslandi í langan tíma og má áætla að strákarnir eyði mestum tíma ársins 2017 erlendis svo tækifærum til að sjá eina bestu hljómsveit Íslands hér á Íslandi fer fækkandi.