Hljómsveitin Skafrenningarnir munu blása nýjum vindum í jólatónlistarflóruna á Íslandi en plata þeirra er væntanleg í nóvember. Á hljómplötunni má heyra lög sem mörg eru betur þekkt í flutningi jazz tónlistarmannsins Chet Baker en nú með nýjum textum eftir Eirik Sördal sem fjalla á gráglettinn og gamansaman hátt um jólin og aðdraganda þeirra.
Leikarinn Þorvaldur Davíð bregður sér í hlutverk seinheppins jazz söngvara sem tekur jólunum passlega fagnandi og með honum í för eru einvala hljóðfærleikarar sem óhætt er að segja að séu á meðal þeirra fremstu á Íslandi.
Skafrenningarnir eru:
Þorvaldur Davíð Kristjánsson - Söngur
Tómas Jónsson - Píanó
Ari Bragi Kárason - Trompet
Kristófer Rodriguez - Slagverk
Birgir Steinn Theodorsson - Kontrabassi
Á tónleikunum verður platan flutt, einnig frumsamin tónlist sem og gömul og kunnuleg jólalög.
Vinsamlegast athugið
18 ára aldurstakmark er á viðburðinn.