Bræðurnir Jón Jónsson og Friðrik Dór hafa þekkst allt frá því að sá síðarnefndi fæddist. Þeir eru einstaklega góðir vinir og eiga sömu mömmuna og sama pabbann. Í fyrra héldu þeir tónleika í Austurbæ og er óhætt að segja að það hafi lukkast vel því á skömmum tíma seldist upp á tvenna tónleika þeirra bræðra.
Þeir ætla því að endurtaka leikinn í ár og blása til tónleika sunnudaginn 11. desember í Austurbæ þar sem mömmur, pabbar, frænkur, frændur, ömmur, afar og auðvitað allir krakkar eru velkomnir. Og til að sem flestir geti látið sjá sig er miðaverðinu haldið í lágmarki.
Munu þeir flytja öll sín vinsælustu lög í bland við önnur og því ekki ólíklegt að lög eins og Í síðasta skipti, Skál fyrir þér, Dönsum eins og hálfvitar, Ástin á sér stað, Gefðu allt sem þú átt, Your Day, Ljúft að vera til og All, You, I fái að hljóma í Austurbænum. Þá er léttleikinn í hávegum hafður og munu þeir bræður spjalla á milli laga og þó það verði að öllum líkindum ekki mjög viturlegt sem þeir munu segja þá má reikna með að það verði skemmtilegt.
Svo skömmu fyrir jól hefur jólaandinn heltekið þá bræður og því er það einlæg von þeirra að fólk gangi út með bros á vör og kærleik í hjarta.