Moji & The Midnight Sons er einstakt band með einstaka sögu. Stofnuð fyrir einstaka tilviljun þegar hin hæfileikaríka Moji Abiola kynntist Bjarna M Sigurðarsyni og Frosta Jóni Runólfssyni og úr varð sambræðingur Bandarískrar sálartónlistar og Íslenskrar rokktónlistar. Sveitin gaf út lagið Dog Days of Summer í sumar og kemur til með að gefa út plötu í október. Tónleikarnir eru liður af tónleikaferð sveitarinnar um landið til að kynna sína nýjustu plötu sem beðið er með eftirvæntingu.
Sveitin hefur sannað sig sem mest spennandi tónleikasveit landsins í dag og ætti enginn aðdáandi góðrar tónlistar láta þennan viðburð framhjá sér fara.
Vinsamlegast athugið
18 ára aldurstakmark er á viðburðinn.