Sónötur Brahms fyrir píanó og fiðlu
Bjarni Frímann Bjarnason og Pétur Björnsson leika sónötur eftir Brams í Hannesarholti laugardaginn 8.október. Á efnisskránni eru:
Sónata fyrir píanó og fiðlu nr 1 eftir Johannes Brahms op. 78
Sónata fyrir píanó og fiðlu nr. 2 eftir Johannes Brahms op. 100
Sónata fyrir píanó og fiðlu nr. 3 eftir Johannes Brahms op. 108
Þrátt fyrir ungan aldur þá hafa þeir víðtæka tónlistarmenntun og merkan tónlistarferil að baki og m.a. þá var Bjarni Frímann útnefndur Bjartasta Vonin í flokki sígildrar og samtímatónlistar á Íslensku Tónlistarverðlaununum 2015.