Quantcast
Channel: Miði.is
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2696

Vil eg, að kvæðið heiti LILJA - Tónleikar

$
0
0

Vil eg, að kvæðið heiti LILJA

Miðvikudaginn 28. september kl. 20:00 í Hannesarholti

 Lilja María Ásmundsdóttir og Örnólfur Eldon flytja tónverkið, Alkemíur sem byggir á hugleiðingum þeirra um helgikvæðið Lilju sem ort var á miðri 14. öld. Verkefnið var styrkt af Tónskáldasjóði RÚV, Musica Nova og Tónlistarsjóði.

Örnólfur Eldon Þórsson (f. 1992) hefur fengist við tónlist um árabil sem flytjandi og tónskáld. Hann lauk BA-prófi við Listaháskóla Íslands árið 2015. Kennarar hans voru Atli Ingólfsson og Helena Tulve. Hann hefur sungið með kórunum í Hamrahlíð síðan 2008 undir stjórn Þorgerðar Ingólfsdóttur og jafnframt samið nokkur verk fyrir þá. Undanfarið ár hefur Örnólfur tekið þátt í uppfærslum tveggja nýrra ópera eftir íslensk tónskáld, UR_ eftir Önnu Þorvaldsdóttur og Njals Saga eftir Atla Ingólfsson. Örnólfur mun hefja mastersnám í tónsmíðum við Tónlistarháskólann í Hannover haustið 2016.

Lilja María Ásmundsdóttir (f. 1993) hefur nýlega lokið B.Mus.-prófi í píanóleik frá Listaháskóla Íslands. Kennari hennar var Peter Máté. Áður stundaði hún nám við Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar hjá Þórunni Huldu Guðmundsdóttur. Lilja var einn af fjórum sigurvegurum í keppninni Ungir einleikarar í nóvember árið 2014 og lék í kjölfarið einleik með Sinfóníuhljómsveit Íslands í janúar 2015. Hún hefur sótt ýmsa masterklassa, m.a. hjá Víkingi Heiðari Ólafssyni, Robert Levin og Steven Osborne. Lilja er á leiðinni í starfsnám haustið 2016 hjá píanistanum Sarah Nicolls í Brighton.

Veitingastofur opna kl. 18.30 og verður léttur kvöldverður í boði á sanngjörnu verði. Borðapantanir samdægurs fyrir kl.16 í síma 511 1904 eða á hannesaholt@hannesarholt.is

Almennt miðaverð kr. 2000  en kr. 1000 fyrir eldri borgara og nema



Viewing all articles
Browse latest Browse all 2696