Þeir eru að koma aftur, þessir hressu bresku gaurar sem heimsóttu Ísland í vor og léku Sex Pistols eins og þeir hefðu aldrei gert annað. En þessi sveit var stofnuð 2001 og hefur síðan spilað yfir1500 tónleika sem Sex Pistols Experience. Það er ekki eingöngu að þeir hljómi eins heldur líkjast þeir þeim í útliti og ná upp þeim sveitta, hráa, kraftmikla anda sem var allsráðandi 1977 þegar Sex Pistols slóu í gegn.
Vinsamlegast athugið
18 ára aldurstakmark er á viðburðinn.